
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og herbergjafjölda, í þriggja hæða húsum með lyftu og bílakjallara. Íbúðirnar eru með svölum, gólfhita, loftskiptakerfi, vönduðum innréttingum, steinplötum í eldhúsi og flísalögðum votrýmum. Húsin eru með lyftu, sérgeymslum, hjóla- og vagnageymslu og aðgengi að bílastæðum á lóð og í bílakjallara.
Íbúðirnar eru með gólfsíðum gluggum sem hleypa birtu vel inn.
Stutt er í stofnæðar og náttúruna við Heiðmörk og Golfklúbb GKG sem og alla helstu þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir.
Hönnun
Vorbrautin er í jaðri Garðabæjar og steinsnar frá helstu útivistarperlum bæjarins eins og Vífilsstaðavatni og Heiðmörk.
Smáralindin er í næsta nágrenni sem og verslunarkjarnarnir í Lindum og á Dalvegi. Fjöldi veitingastaða er í nágrenninu og þá er Garðatorg vinsælt með sínum verslunum.
Garðabær býr þegar yfir góðum innviðum og börn hafa fljótt komist að á leikskólum. Til viðbótar við þá leikskóla sem fyrir eru í bænum stendur til að byggja leikskóla við Vetrarbrautina uppi á Hnoðraholtinu.
Íbúðirnar eru frá stúdíóíbúðum til glæsilegra þakíbúða. Allar fjölskyldugerðir geta fundið íbúð við hæfi.
Einkabílastæði í bílakjallara. Auk þess eru stæði utanhúss.
Innan hverrar íbúðar er loftskiptakerfi sem tryggir það að alltaf er ferskt loft í hverju rými. Þannig er komið í veg fyrir að raki byggist upp og stuðlar að betri loftgæðum innanhúss.
Fallegar íbúðir með einstöku útsýni þar sem lagt er upp úr gæðum í byggingarefnum, innréttingum og birtukröfum.
